Þar sem mér var samviskulega bent á að svartur bakgrunnur væri alveg fáránlegur fyrir vefsíðu núna nýlega, ákvað ég að breyta til. Er þetta betra? (þú veist hver þú ert...
)
Það er samt týpíst af mér, að hafa svart yfir sumarið og breyta svo í ljósari liti þegar líður að vetri. Ég valdi annars þennan frábæra lit vegna þess að hann er í stíl við stofuna okkar hehe 
Það er ávallt nóg að gera, nýnemavikan var tær snilld - nú er ég farin að komast að því af hverju þetta er kallaður BjórHáskólinn
Og ekki var viku-endinn mikið síðri, utan við það að ég lagðist í rúmið í gær með feitan hita og læti, svo neyðir maður sig bara í skólann í slappleikanum.. töff gæ!
Eins og venjulega eru helgarnar framundan að bókast, ég er farin að svara með "humm ég held ég verði að kíkja í dagbókina.."
Verst að vinnan og skólinn gleymist í þessu öllu saman en það á eftir að pússlast...
...afsakið hlé, ég var að hnerra 7 sinnum...
...saman einhvern veginn, eins og maður hafi ekki djögglað áður 
Spurning um að snúa sér aftur að STÆ3103..? (ok ég var að skoða myndbönd af hlæjandi börnum á netinu en þið segið engum
)
(dingding! það er loksins einhver búinn að kjósa í könnuninni minni að þeim líkar ekki við mig...
má ég gerast svo óskammfeilin að biðja viðkomandi að gefa smá útskýringu, þó það sé nafnlaust..? there's always room for improvement
)